Omni channel stefnumótunarferlið samanstendur af fimm lykilskrefum.

Omni channel stefnumótun hentar verslunar- og þjónustufyrirtækjum sem vilja móta og innleiða markvissa retail stefnu sem mætir væntingum viðskiptavina.
1. Grunnstoðir
Fyrsta skrefið í árangursríkri Omni channel stefnumótun er að skilgreina (eða skerpa á) núverandi hlutverki fyrirtækisins, marka framtíðarsýn og skilgreina megin markmið Omni channel innleiðingarinnar.
2. Stöðumat
Þegar grunnstoðirnar liggja fyrir er mikilvægt að kortleggja núverandi stöðu fyrirtækisins. Til að skilgreina hvert fyrirtækið stefnir þarf að vita hvar það stendur.
3. Tækifæragreining
Næst greinum við tækifæri til að mæta betur væntingum viðskiptavina á heildar kaupferlinu og bæta þannig ánægju þeirra og árangur fyrirtækisins.
4. Stefnumótun
Í kjölfar stöðumats og tækifæragreiningar mótum við skýra stefnu sem er klæðskerasniðin þínu fyrirtæk og væntingum þinna viðskiptavina.
5. Innleiðing
Að lokum sjáum við til þess að stefnan sé innleidd svo hún skili hámarksárangri fyrir viðskiptavini og fyrirtækið.
Omni channel stefnumótunin er í boði sem sjálfsnám, netráðgjöf og hefðbundin fyrirtækjaráðgjöf.
“Skemmtilegt og krefjandi ferðalag inn í nýja og spennandi tíma með frábærum fararstjóra, Eddu sem er með mikla ástríðu fyrir starfinu og kemur manni alla leið með jákvæðni og góðri eftirfylgni” Ingibjörg Björnsdóttir, Dýrheimar

Sjálfsnám
•Fjarnám
•5 skrefa ferli sem inniheldur 13 stefnumótandi verkefni.
•13 x video vinnustofur fyrir hvert skref og verkefni sem þú getur unnið hvenær sem þér hentar og á þeim hraða sem þér hentar.
•1 x staðlað stefnumótunar vinnuskjal fyrir fyrirtækið.
•Þegar þú ert búin að fara í gegnum öll skrefin og vinna verkefnin markvisst þá ertu komin með heildræna stefnu fyrir fyrirtækið tilbúin til innleiðingar.
Verð: 189.000
Fá nánari upplýsingar:

Netráðgjöf
•Netráðgjöf
•5 skrefa ferli sem inniheldur 13 stefnumótandi verkefni.
•13 x vinnustofur þar sem ráðgjafi beOmni fer í gegnum hvert skref og vinnur verkefni með fyrirtækinu.
•1 x sérsniðið stefnumótunarskjal fyrir fyrirtækið.
•1 x netfundur þar sem við farið er yfir heildræna Omni channel stefnu fyrirtækisins og næstu skref.
•1 x stöðufundur 3 mánuðum eftir að stefnumótunarvinnu er lokið.
•Í lokin tekur ráðgjafi beOmni saman öll verkefnin og afhendir fyrirtækinu heildaræna Omni channel stefnu sem er sérsniðin fyrirtækinu og tilbúin til innleiðingar.
Verð: 379.000
Fá nánari upplýsingar:

Fyrirtækjaráðgjöf
•Stefnumótun leidd af ráðgjafa beOmni.
•Omni channel stefnumótun sniðin að núverandi stöðu og þörfum fyrirtæksins.
•Vinnustofur leiddar af ráðgjafa beOmni.
•Stefnumótunarverkefni unnin af ráðgjafa beOmni þ.m.t. stöðumat, tækifæragreining, stefnumótun og innleiðing.
•Fyrirtækið fær afhenta sérsniðna Omni channel stefnumótunarskýrslu og aðgerðaáætlun sem er tilbúin til innleiðingar.
•1 x stöðufundur 3 mánuðum eftir að stefnumótunarvinnu er lokið.
Verðtilboð
Fá nánari upplýsingar:
Önnur þjónusta
Heilsdags vinnustofur, fyrirlestrar og þjálfun starfsfólks er samkvæmt tilboði.

FRÍ þarfagreining
Ertu ekki viss hvort Omni channel stefnumótun henti þínu fyriræki eða viltu vita hvernig þitt fyrirtæki stendur í samanburði við heildar upplifun viðskiptavina (e. Omni channel)?
Fylltu út formið hér og bókaðu FRÍA þarfagreiningu.
