Skilgreining á Omni:
-all; of all things.
beOmni aðstoðar verslunar- og þjónustufyrirtæki við að móta árangursríka Omni channel stefnu sem eykur tryggð viðskiptavina og langtíma árangur fyrirtækisins.
Framtíðarsýn
Ísland best í heimi
Framtíðarsýn beOmni er að íslensk verslunar- og þjónustufyrirtæki veiti viðskiptavinum sínum bestu heildarupplifun í heimi.
Edda Blumenstein, eigandi og ráðgjafi BeOmni.

Edda er doktor í Omni channel retailing frá Viðskiptaháskólann í Leeds, Bretlandi.
Edda hefur áratuga reynslu af stefnumótun, innleiðingu og umbreytingu fyrir leiðandi heimsþekkt vörumerki, þ.m.t. Coca-Cola og Nike, auk fjölmargra íslenskra verslunar- og þjónustufyrirtækja á borð við BYKO, Krónuna, Icepharma og Kringluna. Edda hefur haldið fjölda fyrirlestra um Omnichannel, skrifað kennsluefni fyrir Circus Street og kennir heildræna verslunarstefnu við Háskólann á Bifröst.
Leiðandi vörumerki, verslunar- og þjónustufyrirtæki á borð við Nike, Walmart, Hugo Boss, BestBuy, Nordstrom, og John Lewis hafa umbreytt sinni retail stefnu yfir í Omni channel retailing á undanförnum árum til að mæta aukinni samkeppni og breyttri kauphegðun neytenda.
Til að ná langtíma árangri í markaðsumhverfi nútímans þurfa fyrirtæki að umbreyta menningu, stjórnun, ferlum, sölu og markaðssetningu, úr fyrirtækja og vöru fókus í viðskiptavina fókus, með því að setja viðskiptavininn í fyrsta sæti.
Skýr Omni channel stefna er lykilatriði í þeirri umbreytingu.